Þjónusta og verð
Við höldum verðskránni einfaldri og gagnsærri. Engin falin gjöld — bara skýrt verð og persónuleg þjónusta.
Vetur
Fyrir starfsfólk, leiðsögumenn, verkefni, tökulið, viðburði og vetrarferðir.
95.000 kr. / viku
18.000 kr./nótt (2–6 nætur) · 95.000 kr./viku · 290.000 kr. fyrir 4 vikur.
Hvaða komudag sem er, lágmark 2 nætur.
Sumar 2027
Sumarið 2027 er opið fyrir bókanir. Heilar vikur, frá miðvikudegi til miðvikudags.
150.000 kr. / viku
2 vikur −5% · 3 vikur eða lengur −10%.
- Fortjald og allur búnaður innifalinn.
- Sumar (júní–sept.): heilar vikur, frá miðvikudegi til miðvikudags.
- Vetur (okt.–maí): sveigjanleg leiga — hvaða komudag sem er, lágmark 2 nætur.
- Rafmagn er innifalið þegar gist er í hýsinu á núverandi staðsetningu þess í Þjóðólfshaga (Suðurlandi). Sé hýsið flutt annað er rafmagn ekki innifalið.
- Staðfestingargjald 30% við bókun, eftirstöðvar við afhendingu.
- Afhending og uppsetning samkvæmt tilboði.
Í hverri leigu
- Fullbúið hjólhýsi með öllum eldhúsbúnaði
- Gaskútur og tjaldstæðissnúra
- Stórt uppblásið fortjald og útihúsgögn
- Þrif og undirbúningur fyrir afhendingu
- Yfirferð á öllum búnaði við afhendingu
- Símaþjónusta allan leigutímann
- Gas er alltaf innifalið — sumar og vetur.
Gott að vita
Gestir koma með eigin sæng, kodda og sængurföt. Hreint lak er alltaf á rúmum við afhendingu.
Premium viðbætur
Premium afhending
Við komum með hjólhýsið á áfangastað, leggjum því og göngum frá tengingum.
Uppsetning á tjaldstæði
Jöfnun, rafmagn, vatn og fortjald sett upp áður en þú mætir.
Bókun, trygging og afhending
Bókun. Við netbókun eru dagarnir teknir frá í 48 klukkustundir. Bókun er staðfest þegar 30% staðfestingargjald hefur verið greitt og Kargo hefur sent skriflega staðfestingu. Eftirstöðvar greiðast í síðasta lagi við afhendingu.
Trygging. Hjólhýsið er tryggt samkvæmt íslenskum reglum. Leigutaki ber ábyrgð á sjálfsábyrgð verði tjón á leigutíma.
Afhending og skil. Afhending og skil fara fram í Þjóðólfshaga á Suðurlandi nema samið sé sérstaklega um annað. Hjólhýsinu skal skilað hreinu með tæmda tanka.
Dráttarbíll. Leigutaki þarf ökutæki með nægilega dráttargetu (heildarþyngd 1.700 kg) og gilt ökuréttindi fyrir eftirvagn.
Spurningar? Hringdu í 787 9050.

