
Hjólhýsið
Hobby 560 KMFe De Luxe
Þýsk gæðasmíði, hugsuð fyrir fjölskyldur. Rúmgott, hlýtt og fullbúið — með miðstöð og heitu vatni. Hentar vel til vetrargistingar — í Þjóðólfshaga er hýsið tengt rafmagni.
Grunnupplýsingar
Tæknilegar upplýsingar
- Tegund
- Hobby 560 KMFe De Luxe
- Svefnpláss
- Allt að 6 manns
- Lengd
- Um 7,7 m með beisli
- Breidd
- 2,50 m
- Heildarþyngd
- 1.700 kg
- Rúmauppsetning
- Tvíbreitt rúm, kojur og borðkrókur sem breytist í rúm

Búnaður
Allt fylgir með
Eldhús
- Þriggja hellu gaseldavél
- Kæliskápur með frystihólfi
- Vaskur með heitu og köldu vatni
- Allur borðbúnaður – pottar, pönnur, diskar, glös og hnífapör
- Ristavél
- Ríflegt geymslupláss í skápum
Svefn og setustofa
- Tvíbreitt rúm fremst
- Tvær kojur með öryggisneti
- Borðkrókur sem breytist í tvíbreitt rúm
- Sjónvarp með Apple TV og hljóðkerfi
- Myrkvunargardínur og flugnanet
Snyrting
- Salerni með úrtaki
- Vaskur og spegill
- Heitt vatn um borð
- Loftræsting og geymsluhillur
Tækni og útbúnaður
- Miðstöð og heitt vatn (gas/rafmagn)
- 230V tenging og innstungur
- WiFi um borð
- Sólarsella
- Mover – rafknúinn færslubúnaður sem auðveldar að koma hýsinu fyrir
- Stórt uppblásið fortjald fyrir rúmgott útisvæði
- Vatnstankur og skólptankur
- Tjaldstæðissnúra og gaskútur fylgja
- Útihúsgögn – borð og stólar
- Hitablásari fyrir fortjald eða hýsi
Gott að vita
Gestir koma með eigin sæng, kodda og sængurföt. Hreint lak er alltaf á rúmum við afhendingu.
Myndasafn
Skoðaðu hjólhýsið
Smelltu á mynd til að stækka hana.
