Þjónustuskilmálar
Skilmálar þessir gilda um alla leigu á hjólhýsi Kargo ehf. Nánari upplýsingar má fá í síma 787 9050.
1. Bókun og staðfesting
Við netbókun eru valdir dagar teknir frá fyrir leigutaka í 48 klukkustundir. Sumar (júní–sept.): heilar vikur, frá miðvikudegi til miðvikudags. Vetur (okt.–maí): sveigjanleg leiga — hvaða komudag sem er, lágmark 2 nætur. Vetrarverð: 18.000 kr./nótt (2–6 nætur) · 95.000 kr./viku · 290.000 kr. fyrir 4 vikur. Staðfestingargjald er 30% af leiguverði. Bókun telst staðfest þegar staðfestingargjald hefur verið greitt og Kargo hefur sent skriflega staðfestingu. Eftirstöðvar leiguverðs greiðast eigi síðar en við afhendingu.
2. Afbókanir
Sé afbókað með meira en 30 daga fyrirvara endurgreiðist staðfestingargjald að fullu. Sé afbókað með skemmri fyrirvara reynum við ávallt að endurleigja tímabilið og endurgreiðum þá hlutfallslega.
3. Ökuréttindi og dráttarbíll
Leigutaki skal hafa gild ökuréttindi fyrir eftirvagn og ökutæki með nægilega dráttargetu miðað við 1.700 kg heildarþyngd. Kargo áskilur sér rétt til að hafna afhendingu ef þessi skilyrði eru ekki uppfyllt.
4. Ábyrgð leigutaka
Leigutaki ber ábyrgð á hjólhýsinu allan leigutímann, þar með talið á sjálfsábyrgð verði tjón. Óheimilt er að aka hjólhýsinu á vegum sem merktir eru F-vegir eða um óbrúaðar ár.
5. Afhending og skil
Afhending og skil fara fram í Þjóðólfshaga á Suðurlandi nema samið sé sérstaklega um annað. Hjólhýsinu skal skilað hreinu, með tæmda skólp- og salernistanka og fullan gaskút. Sé þrifum ábótavant er innheimt þrifagjald. Gas er alltaf innifalið. Rafmagn er innifalið þegar gist er í hýsinu á núverandi staðsetningu þess í Þjóðólfshaga (Suðurlandi). Sé hýsið flutt annað er rafmagn ekki innifalið.
6. Tryggingar
Hjólhýsið er tryggt lögbundnum tryggingum. Persónulegir munir leigutaka eru ekki tryggðir af Kargo.
7. Óviðráðanleg atvik
Kargo ber ekki ábyrgð á tjóni, töfum eða röskun sem rekja má til óviðráðanlegra atvika utan áhrifasviðs fyrirtækisins, svo sem náttúruhamfara, óveðurs eða lokunar vega. Í slíkum tilvikum leitum við ávallt sanngjarnrar lausnar með leigutaka.
8. Lög og lögsaga
Um skilmála þessa gilda íslensk lög og rísi ágreiningur skal hann rekinn fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
