
Frelsi til að ferðast – með allt sem þarf
Kargo leigir út vandað Hobby 560 KMFe De Luxe hjólhýsi. Hver einasti gestur fær sömu umhyggju, sama búnað og sömu persónulegu þjónustuna.
Vönduð hjólhýsaleiga. Óskipt athygli.
Kargo er íslenskt fjölskyldufyrirtæki sem býður vandaða og persónulega hjólhýsaleigu. Við leggjum áherslu á hreinlæti, gott viðhald og persónulega afhendingu — engin afgreiðsluborð og engin óþarfa bið.
Markmiðið er einfalt: að þú getir lagt af stað með fullbúið heimili á hjólum og einbeitt þér að því að njóta ferðarinnar.
Lesa meira um okkur
Allt sem þarf fyrir góða ferð
Svefnpláss fyrir sex
Tvíbreitt rúm, kojur og borðkrókur sem breytist í rúm — nóg pláss fyrir alla fjölskylduna.
Fullbúið eldhús
Helluborð, kæliskápur með frysti, vaskur og öll áhöld til að elda alvöru máltíðir á ferðalaginu.
Snyrting
Salerni, vaskur og heitt vatn um borð svo þið eruð ekki háð aðstöðu á tjaldstæðum.
Persónuleg afhending
Við förum yfir allan búnað með þér og getum afhent hjólhýsið á þeim stað sem hentar þér best.
Tengd og sjálfbær
WiFi, Apple TV og sólarsella um borð — og mover sem auðveldar uppsetningu á staðnum.
Hlýlegt, bjart og hugsað fyrir fjölskyldur




Vetrarleiga 2026–2027
Hýsið er staðsett í Þjóðólfshaga á Suðurlandi þar sem hægt er að gista í því með rafmagni og gasi inniföldu — eða við komum því þangað sem verkefnið er.
- Vikuleiga95.000 kr. / viku
- 4 vikur290.000 kr.
- GasInnifalið
- RafmagnInnifalið í Þjóðólfshaga
- LeigutímiHvaða dag sem er, frá 2 nóttum
- Stuttar ferðir18.000 kr. / nótt

