Kargo ehf. – premium hjólhýsaleiga á Íslandi
Lagalegt

Persónuverndarstefna

Hverju söfnum við?

Þegar þú sendir fyrirspurn í gegnum vefinn söfnum við nafni, netfangi, símanúmeri og þeim upplýsingum sem þú skráir sjálf/ur um óskað tímabil, fjölda ferðalanga, staðsetningu og skilaboð.

Til hvers eru upplýsingarnar notaðar?

Eingöngu til að svara fyrirspurninni, undirbúa tilboð og halda utan um bókanir. Við seljum ekki upplýsingar til þriðja aðila og sendum ekki markpóst án samþykkis.

Geymslutími

Fyrirspurnir eru geymdar á meðan þær eru í vinnslu og að hámarki í 24 mánuði. Bókanir og reikningar eru geymd eins lengi og bókhaldslög krefjast.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem við geymum um þig, láta leiðrétta þær eða eyða þeim. Sendu beiðni á kargo@kargo.is og við bregðumst við innan 30 daga.

Vefkökur

Vefurinn notar ekki auglýsinga- eða rakningarkökur. Eingöngu nauðsynleg tæknileg gögn eru notuð til að vefurinn virki eðlilega.

Ábyrgðaraðili

Kargo ehf., kt. 570524-1940, Mosfellsbær, Ísland. Sími 787 9050.