Skilmálar
SKILMÁLAR
Þessir skilmálar gilda um viðskipti við Kargo / Andlit ehf., til neytenda. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á tilboði og greiðslu fyrir viðskipti. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og tryggjum við ávallt viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu.
SKILGREININGAR
Seljandi er Kargo / Andlit ehf., kt. 590617-1480. Kaupandi er sá aðili sem skráður er kaupandi á reikningi. Kaupandi þarf að vera a.m.k. 16 ára.
SKILARÉTTUR
ATH! Það er engin skilaréttur þar sem um innflutning á vörum og hlutum er að ræða. Útflutningur er á kostnað kaupanda.
VERÐ OG VERÐBREYTINGAR
Öll verð fyrir þjónustu og innflutning eru gefin upp í íslenskum krónum. Virðisaukaskattur og aðflutningsgjöld eru svo gefin upp sér. Öll verð eru gefin upp með fyrirvara um innsláttarvillur. Kargo / Andlit ehf., áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru ekki afturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.
PERSÓNUVERND
Kargo / Andlit ehf., fer með allar upplýsingar sem trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu.
AFHENDINGATÍMI
Ef vörur eru sóttar, þá er afhendingartími eftir samkomulagi. Heimkeyrslur og sendingar á pósthús eða í póstbox taka yfirleitt 1-2 virka daga eftir að sending kemur til landsins. Allar sendingar innanlands eru sendar með Íslandspósti eða Dropp.
ÖRYGGI
Það er 100% öruggt að stunda viðskipti við Kargo.
Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Valitor/Straums.
GREIÐSLUMÖGULEIKAR
Á heimasíðu Kargo er boðið uppá að greiða með öllum helstu greiðslukortum og fer greiðsla í gegnum örugga greiðslugátt hjá Valitor/Straum á Íslandi. Einnig er boðið upp á að greiða með millifærslu, Netgíró og Pei.
Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla berst og pöntun er send.
FYRIRTÆKJAUPPLÝSINGAR
Andlit ehf., / Kargo
Glæsibær / Álfheimar 74
104 Reykjavík
Netfang: kargo@kargo.is
VSK nr. 128534
STAÐSETNING
Glæsibær
Álfheimar 74
104 Reykjavík
VARNARÞING
Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur Kargo / Andlit ehf., kt. 590617-1480 á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Heimilisfang félagsins er Álfheimar 74, 104 Reykjavík. Varnarþing félagsins skal vera í Reykjavík skv. V. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, nema ákvæði sérlaga kveði á um annað.
PÓSTLISTI
Með skráningu á póstlistann munum við vista upplýsingar um nafn og netfang.
Upplýsingar eru einungis nýttar í þeim tilgangi að senda þér tilboð eða fréttir um nýjar vörur og þjónustu.
Upplýsingar eru vistaðar meðan skráning á póstlistanum er virk, en hægt er að afskrá sig hvenær sem er og þá er öllum persónulegum upplýsingum eytt.