Production Services

Hreyfanleg aðstaða þar sem verkefnið er

Við vitum að við kvikmynda-, sjónvarps- og auglýsingatökur getur verið erfitt að finna hentuga gistingu og góða aðstöðu nálægt tökustað.

Kargo býður upp á fullbúið Hobby 560 KMFe De Luxe hjólhýsi sem hægt er að afhenda og setja upp á umsaminn stað víðs vegar um landið.

Hjólhýsið getur meðal annars nýst sem:

  • Gistiaðstaða fyrir leikara.
  • Aðstaða fyrir leikstjórn eða framleiðendur.
  • Hvíldarrými fyrir lykilstarfsfólk.
  • Starfsmannaaðstaða fyrir tökulið.
  • Sveiganleg aðstaða við auglýsinga- og ljósmyndatökur.
  • Bráðabirgðaaðstaða þar sem hefðbundin gisting er takmörkuð.

Fullbúið fyrir verkefnið

Hjólhýsið er meðal annars búið:

  • Svefnplássi fyrir allt að 6 manns.
  • Hjónarúmi og kojum.
  • Fullbúnu eldhúsi.
  • Kæliskáp og frystihólfi.
  • Salerni, heitu og köldu vatni.
  • WiFi
  • Sjónvarpi og AppleTV
  • Hitakerfi fyrir rafmagn og gas.
  • Sólarsellu og geymi.
  • Borðkrók og góðri vinnu-hvíldaraðstöðu.
Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi við sólsetur

Við sjáum um allt

Við flytjum hjólhýsið á umsaminn stað.

Uppsetning
Við komum því fyrir, stillum það af og tengjum þann búnað sem þarf.

Sækjum að verkefni loknu
Við sækjum hjólhýsið aftur þegar leigutímabilinu lýkur.

Þannig þarft þú eða teymið þitt ekki að vera með dráttarbíl, krók, né réttindi til að draga eftirvagn.

Fyrir hverja hentar þjónustan?

  • Kvikmyndaframleiðslufyrirtæki.
  • Sjónvarpsframleiðendur.
  • Framleiðslufyrirtæki.
  • Auglýsingastofur.
  • Ljósmyndara og myndbandsteymi.
  • Erlend framleiðsluteymi á Íslandi.
  • Viðburðarfyrirtæki.
  • Verktaka og fyrirtæki með tímabundin verkefni utan þéttbýlis.
Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi innréttingar

Sveiganleg leiga

  • Dagleiga.
  • Vikuleiga.
  • Leiga fyrir lengri framleiðsluverkefni.
  • Flutningur milli tökustaða samkvæmt samkomulagi.
  • Sérsniðin tilboð fyrir lengri og umfangsmeiri verkefni.

Verð er samkvæmt tilboði og tekur mið af leigutíma, staðsetningu, afhendingu og umfangi þjónustunnar.

Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi að innan

Vantar aðstöðu fyrir næsta verkefni?

Sendu okkur upplýsingar um staðsetningu, dagsetningar og fyrirhugaða notkun og við útbúum sérsniðið tilboð.

Hafa samband
Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi við vatn
Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi innréttingar
Hobby 560 KMFe De Luxu hjólhýsi með kojum